Galdur 6 ára – Útikisa

31 okt, 2025

Galdur er frábær köttur sem er að leita sér að góðu framtíðarheimili. Hann elskar athygli, er kelinn og vanur rólegheitum. Hann vill fá að komast út öðru hvoru. Galdur vill vera eina kisan á heimilinu.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Galdur. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.