Freyja er félagslind og hress læða sem óskar eftir góðu heimili. Hún er ekki mikið fyrir aðra ketti. Hún er mjög kelin og mannelsk. Hún þyrfti að léttast um nokkur kíló í samráði við dýralækni.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Freyju. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
