Fjóla 3 ára – útikisa

3 des, 2024

Fjóla fagra er 3 ára svört og hvít læða sem óskar nú eftir traustu framtíðarheimili þar sem hún fær tækifæri að leika sér úti. Hún er mannelsk og góð en vill ekki búa með ungum börnum eða öðrum dýrum.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Fjólu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.