Bento 8 ára – Útiköttur

15 apr, 2025

Bento er yndislegur 8 ára rólegur fress sem vill komast á rólegt og gott heimili þar sem hann fær að fara inn og út að vild. Hann vill vera eini kötturinn á barnlausu heimili. Honum finnst mjög gott að fá klapp og knús.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Bento. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.