Kattavinafélag Íslands hvetur kattaeigendur til að fara að reglugerðum sveitarfélaga og halda köttum sínum innandyra eins og mögulegt er á meðan á varptíma fugla stendur.

Í reglugerð Reykjavíkurborgar um kattahald í borginni segir m.a.:
„Til að lágmarka tjón sem kettir geta valdið fuglalífi í borginni ber eigendum að hengja bjöllu á ketti á varptíma fugla eða takmarka eftir atvikum útiveru katta“.
Höfum þetta í huga með heimiliskettina okkar. Erfiðara er með villiketti, sem lítið æti hafa. Munum líka eftir þeim.