Okkur vantar hörkuduglegan starfsmann sem er tilbúinn að vinna undir álagi, er jákvæður, stundvís og umfram allt mikill kisuvinur. Starfið felst í umönnun, ræstingu og afgreiðslu.

Vinnutími aðra hvora helgi, laugardag og sunnudag kl. 8-13 og afleysingar í sumar. Möguleiki á hærra starfshlutfalli í haust.

Æskilegt að viðkomandi sé eldri en 20 ára. Íslenskukunnátta skilyrði. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á [email protected].