Okkur vantar hörkuduglegan starfsmann sem er tilbúinn að vinna undir álagi, er jákvæður, stundvís og umfram allt mikill kisuvinur. Starfið felst í umönnun, ræstingu og afgreiðslu.

Starfshlutfall er u.þ.b. 50%. Inn í því er önnur hvor helgi, laugardag og sunnudag kl. 8-13.

Æskilegt að viðkomandi sé eldri en 20 ára. Íslenskukunnátta skilyrði. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á [email protected].