Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn, 3. mars kl. 13:00 – 16:00 í fyrirlestrarsal ráðuneytisins að Skúlagötu 4 (1.h.) í Reykjavík. Á málþinginu gefst gæludýraeigendum og öðrum áhugasömum kostur á að fræðast um kröfur og helstu nýmæli nýrrar reglugerðar um velferð gæludýra, með gagnvirkum umræðum í lokin.

Með útgáfu reglugerðarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lokið útfærslu á nýjum dýravelferðarlögum fyrir allar helstu dýrategundir sem löggjöfin nær yfir. Matvælastofnun fer með framkvæmd laganna og reglugerða um velferð dýra og hefur eftirlit með að ákvæðum þeirra sé fylgt.

Dagskrá

13:00 – 13:10 Ný reglugerð um velferð gæludýra -Halldór Runólfsson, fundarstjóri

13:10 – 13:20 Af hverju nýjar reglur og hver fylgist með? -Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir

13:20 – 14:30 Meðferð, umhirða og aðbúnaður gæludýra -Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun

14:30 – 14:45 Hlé

14:45 – 15:15 Tilkynningarskylt dýrahald – hvað er það? -Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun

15:15 – 15:55 Umræður

15:55 – 16:00 Samantekt og lokaorð -Halldór Runólfsson, fundarstjóri

Skráning

Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir! Skráning fer fram á netfanginu [email protected]. Vinsamlega takið fram fullt nafn, fyrirtæki/samtök og netfang þátttakanda við skráningu. Skráningarfrestur er til 1. mars nk.

Nánari upplýsingar um reglugerðina