Fyrir þremur árum féll 2 ára kisinn okkar niður af svölum af 3. hæð á heimili okkar. Í marga mánuði leituðum við hans með hjálp margra en leitin bar engann árangur. Við byrjuðum þá að syrgja hann ásamt börnunum okkar og töldum hann látinn þar sem fallið var svo hátt, vetrarnir kaldir og hann var ekki útikisi. Seinasta þriðjudag barst okkur svo símtal þar sem okkur var tilkynnt að Kisinn okkar væri fundinn. Við áttum ekki til orð. Hann var slasaður þegar hann fannst og einhver tók sér tíma til þess að bjarga honum og fara með hann i Kattholt. Mér langar að þakka þeim sem tók þá ákvörðun að aðstoða kisann okkar og bjarga jafnvel lifi hans. Eg veit ekkert hver það var sem gerði þetta en sá sami má vita að við erum svo þakklát. Börnin okkar líka. Eg vil líka þakka Kattholti fyrir ummönnunina á honum Gabríel á meðan hann var hjá ykkur. Þúsund þakkir fyrir að sameina hann fjölskyldu sinni aftur. Gabríel er að aðlagast vel heimilinu og hinni 6 mánaða kisu skvísunni okkar. Hann sefur og sefur. Nýtur matarins og kúrir endalaus í faðmi okkar. Aftur þúsund þakkir fyrir góðmennsku ykkar sem áttu þátt í því að Kisi okkar er komin heim.