Óskum eftir fósturheimili fyrir kettlingafulla læðu. Um er að ræða fóstur í þrjá mánuði. Læðan heitir Písl og er mjög ljúf og kelin. Við leitum að ábyrgðarfullum einstaklingum og kattavinum sem búa við rólegheit og eru mikið heima við í sumar. Ef önnur dýr eru á heimilinu þá þarf litla fjölskyldan að hafa aðgang að aukaherbergi. Vinsamlegast hafið samband með því að senda tölvupóst á [email protected], hringja í síma 567-2909 eða senda einkaskilaboð á Facebook.
KATTHOLT
Kattavinafélag Íslands
Sími: 567 2909
Netfang: [email protected]
Viltu styrkja Kattholt?
Instagram Kattholts
https://www.instagram.com/kattholtskisur/
KATTHOLT Á FACEBOOK
KATTAVINAFÉLAGIÐ Á FACEBOOK
KISA MÁNAÐARINS Í KATTHOLTI
✨ Kattholtskisinn ✨
Við kynnum til leiks Sir Leonard, eða Leó ❤️ Hann hefur ákveðið að taka að sér það mikilvæga verkefni að stýra Kattholti með sínu dásamlega jafnaðargeði og endalausu þolinmæði. Hann tekur á móti nýjum hótelgestum af einskærri kurteisi og fær jafnvel hræddustu kisur til þess að líða betur með blíðlegu "kvaki" sínu. Hann leikur við þær orkumiklu og liggur hjá þeim rólegu. Hann er fullkominn Kattholtskisi ❤️ Við hlökkum til að leyfa ykkur að kynnast honum!
Leó er 3 ára kremaður og loðinn fress sem kom til okkar af heimili í janúar og átti að fara á nýtt heimili, en honum var skilað í tvígang vegna þess að hann var greinilega staðráðinn í því að búa hér í Kattholti, með hinum kisunum og okkur starfsfólkinu. Oft fara hlutirnir bara nákvæmlega eins og þeir eiga að fara og við gætum ekki verið hamingjusamari með hann hjá okkur ❤️
Mynd eftir @thordisreynis ❤️
Emil í Kattholti
1991-2004
Bjartur
1998-2013