Gamlársdagur og dagarnir þar um kring eru köttum erfiðir, þeir verða skelfingu lostnir yfir hávaðanum sem fylgir flugeldum og skilja ekki hvað gengur á. Mælum með að halda útiköttum innandyra á gamlársdag og á þrettándanum. Nauðsynlegt er að hlúa að heimiliskettinum, búa til skjól þar sem hann getur legið og kúrt sig t.d. í botn á skáp og setja þar þykkt teppi fyrir hann til að liggja á.

Þegar mikill gestagangur er eins og algengt er um hátíðirnar þarf að huga sérlega vel að dyrum þegar gengið er um. Einfaldast er að loka kisu af í sér herbergi ef mikill umgangur er. Þar inni er gott að hafa útvarp lágt stillt, loka kirfilega gluggum og draga gluggatjöld fyrir.

Feliway og Pet remedy geta reynst vel (fáanleg í verslunum með dýravörur og hjá dýralæknum). Þau róa taugar og veita köttum öryggis tilfinningu. Til eru tvær gerðir, annars vegar er hægt að kaupa þar til gerða kúlu sem sett er í samband við rafmagn og hins vegar má fá úðabrúsa. Ágætt að byrja á að nota þetta nokkrum dögum fyrir áramót.

Sumir kettir verða svo yfir sig skelkaðir að ákjósanlegt er að fá róandi hjá dýralækni fyrir þá. Til þess þá þarf að hafa samband við dýralækni í tíma.

Minnum fólk á að í nágrenninu geta verið kettir sem lifa á vergangi og eiga erfitt líf. Gaukum að þeim bita og útbúum skjól fyrir þá í vondum veðrum.

Á síðunni Flugeldahljóð má finna ýmiss konar fróðleik. Einnig eru gagnlegar upplýsingar á heimasíðu Mast.