Gamlársdagur og dagarnir þar í kring eru flestum köttum erfiðir. Þeir verða skelfingu lostnir yfir hávaðanum sem fylgir flugeldum og skilja ekki hvað gengur á.

Mælum með að halda útiköttum innandyra á gamlársdag og á þrettándanum. Nauðsynlegt er að hlúa að heimiliskettinum, búa til skjól þar sem hann getur legið og kúrt sig t.d. í botn á skáp og setja þar þykkt teppi fyrir hann til að liggja á.

Þegar mikill gestagangur er eins og algengt er um hátíðirnar þarf að huga sérlega vel að dyrum þegar gengið er um. Einfaldast er að loka kisu af í sér herbergi ef mikill umgangur er. Þar inni er gott að hafa útvarp lágt stillt, loka kirfilega gluggum og draga gluggatjöld fyrir.

Feliway og Pet remedy geta reynst vel (fáanleg í verslunum með dýravörur og hjá dýralæknum). Þau róa taugar og veita köttum öryggistilfinningu. Til eru tvær gerðir, annars vegar er hægt að kaupa þar til gerða kúlu og efni sem sett er í samband við rafmagn og hins vegar úðabrúsa. Ágætt að byrja á að nota þetta nokkrum dögum fyrir áramót.

Minnum fólk á að í nágrenninu og víðar eru oft kettir sem lifa á vergangi, sem eiga mjög erfitt líf og eru því berskjaldaðir gagnvart vondum veðrum og hávaða. Gaukum að þeim bita og útbúum skjól fyrir þá í vondum veðrum.

Á síðunni www.flugeldahljod.com má finna ýmiss konar fróðleik og ráð. Einnig eru gagnlegar upplýsingar á heimasíðu Mast: www.mast.is